Íslenskt efni á Sverrir.info
- Hugmyndir, hönnun og listsköpun
- Frumkvöðlaverkefni
- Vatnajökulsþjóðgarður
- Þjónusta
Hugmyndir og hönnun
Hér eru tenglar á vefi Sverris sem tengjast hugmyndasköpun og hönnun
Ideabun
Ideabun er vefur sem lýsir möguleikum sem Sverrir gæti hugsað sér að vinna að síðar, og einnig viðskiptahugmyndir sem hver sem er má nýta ókeypis.Lista- og hönnunargallerí Sverris
Í galleríinu er yfirlit hönnunar og listsköpunar Sverris gegnum tíðina.
Efni tengt Vatnajökulsþjóðgarði
Á árunum 1992-1998 vann Sverrir að tillögum að friðlýstu svæði eða þjóðgarði á og kringum Vatnajökul, og var hann sá eini í sögunni sem setti fram faglegar og ítarlegar tillögur að slíku. Á árunum 1998-2000 ræddu og samþykktu Alþingi og ríkisstjórn að stofna Vatnajökulsþjóðgarð. Unnið var að undirbúningi 2001-2008, og var þjóðgarðurinn stofnaður árið 2008. Á árunum 2001 til 2014 setti Sverrir fram ýmsar hugleiðingar og efni tengt þjóðgarðinum beint eða óbeint. Hér eru tenglar á það efni:
Nýjasta efnið: Janúar 2019
Tvær “strategíur”: Hin óþekkta saga Vatnajökulsþjóðgarðs – mjög óvenjuleg atvinnuumsókn
Tvær strategíur:
Lesa samantektina
á vefnum
====
Annað efni og erindi send út:
Formleg ósk um skoðun á
upphafi Vatnajökulsþjóðgarðs
Fyrra efni:
Skrefin að Vatnajökulsþjóðgarði: Atburðarásin 1992-1999
Bók útgefin 2013, 282 bls., með öllu efni og yfirliti atburða á árunum 1992-1999 sem tengdust tillögum að stofnun stórs náttúruverndarsvæðis eða þjóðgarðs á Vatnajökli. Á vefsíðu bókarinnar er líka stutt yfirlit sögunnar.
Virði Vatnajökulsþjóðgarðs
Myndskeið á Youtube um hugsanlegt efnahagslegt virði Vatnajökulsþjóðgarðs, með samanburði við efnahagslegur áætlanir um erlenda þjóðgarða í USA og Bretlandi, og miklu af fallegum myndum. (13:31 mínútur.)
Uppbygging.org
Uppbygging.org er vefur með hugleiðingum um andrúmsloftið í íslensku samfélagi eftir bankahrunið, um nýsköpunarhugsun og leiðir til að skapa verðmæti og byggja upp. Opnaður árið 2011. Hugleiðingar og niðurstöður voru byggðar á reynslu Sverris af þróun Vatnajökulshugmynda.
Um atburðarásina
Myndskeið á Youtube um bókina Skrefin að Vatnajökulsþjóðgarði, farið gegnum söguna 1992-1999 með skýringarmyndum. (29:48 mínútur.)
Hvaða máli skiptir þetta?
Myndskeið á Youtube sem fjallar um hvers vegna það sem lýst er í bókinni Skrefin að Vatnajökulsþjóðgarði skiptir máli. (20:08 mínútur.)
SeeVatnajokull.net
Samfélagsvefur fyrir gesti að setja inn sögur, myndir og myndskeið frá heimsókn í Vatnajökulsþjóðgarð og umhverfi hans. Settur upp af Sverri. Vefurinn var opnaður árið 2010.
Efni sett fram 2001-2013
Eftir að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs hafði verið ákveðin setti Sverrir fram ýmiskonar efni. Hann setti fram ritgerð um líkleg viðhorf Íslendinga árið 2001. Mest setti hann fram á árinu 2004-2005, en þá setti hann fram nokkrar ritgerðir um efnahagslega þætti og slíkt. Hann opnaði samfélagsvefinn SeeVatnajokull árið 2010 og setti upp vefinn Uppbygging.org árið 2011 með hugleiðingum um nýsköpun og uppbyggingu nýrra tækifæra í kjölfar bankahruns, innblásnar af þróun Vatnajökulshugmynda á sínum tíma. Einnig bjó hann það ár til myndskeið um efnahagslega þætti. Smelltu hér fyrir yfirlitssíðuna yfir þetta efni.
Atburðarásin 2001-2016
Samantekt um atburðarásina árin 2001-2016, þ.e. eftir samþykkt ríkisstjórnar um að stofna Vatnajökulsþjóðgarð, og gegnum árin þegar hann var undirbúinn, stofnaður, og fyrstu árin. Smelltu hér fyrir PDF skjal.
Eldri síða Sverrir.info
Öll eldri skrif um ímynd Íslands og
friðlýsingu Vatnajökuls og nágrennis, frá 1992 til 2016 (gamla síðan). Blaðagreinar, tillögur sem hlutu verðlaun í opinberum samkeppnum og annað efni 1992-1998, og efni sent út frá 2001 til 2013.
Frumkvöðlaverkefni – rekstrarverkefni
Sverrir er með frumkvöðlaverkefni sem eru ýmist komin í rekstur eða á þróunarstigi. Vörumerkið Look: Viking! er í rekstri með verslun á vefnum (opnað 20. desember 2017). Live Stream Design er nýtt viðskiptamódel sem Sverrir þróaði haustið 2017, tengt hönnun. Þessi starfsemi er komin í gang og hyggst Sverrir vinna að kynningu þess á árinu 2018. Flugeldahljóð gerð “örugg” er íslensk síða sem tengist viðskiptahugmynd fyrir erlenda markaði sem er langt komin á þróunarstigi.
Look: Viking! er vörumerki Sverris í hönnun á ýmiskonar fatnaði og vörum í stíl hinna fornfrægu víkinga.
Live Stream Design
Live Stream Design er nýtt viðskiptamódel (business model) sem hver sem er getur nýtt sér í hönnunartengdu starfi. Sverrir þróaði þessa nálgun haustið 2017 og fyrsti atburðurinn var 30. desember 2017.
Flugeldahljóð.com
Vefur sem býður eigendum gæludýra ókeypis lausn til að vinna með hræðslu við flugelda um áramót. Þjónustan á vefnum er opin frá október til loka desember. Þessi vefur tengist öðru verkefni, mun stærra, sem Sverrir hefur unnið að á sama sviði.
Þjónusta
Sverrir hefur í gegnum tíðina tekið að sér ýmis verkefni, undir nafninu Marktak, og einnig gert myndskeið fyrir vefinn undir vörumerkinu Grípandi.